Starfsfólk sendiráðsins hljóp í maraþoninu á Menningarnótt

Hluti starfsfólks Sendiráðs Frakklands á Íslandi hljóp til styrktar Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í Reykjavíkurmaraþoninu á Menningarnótt á laugardaginn.

Hluti starfsfólks Sendiráðs Frakklands á Íslandi hljóp til styrktar Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í Reykjavíkurmaraþoninu á Menningarnótt á laugardaginn ásamt framkvæmdarstýru Alliance Française í Reykjavík.

Fjölskyldumeðlimir í yngri kantinum komu með og allir skemmtu sér konunglega fyrir góðan málstað.

Veðrið á Menningarnótt var sólríkt og hlýtt og skemmtilegt var að fylgjast með öllum þeim menningarviðburðum sem voru í boði allan liðlangan daginn. Að vana endaði svo Menningarnótt á glæsilegri flugeldasýningu við Reykjavíkurhöfn.

Síðasta uppfærsla þann 21/08/2023

Efst á síðu